Eftir árum

Fréttir

Auglýst eftir handritum í samkeppni um Íslensku barnabókaverðlaunin

Árlega halda Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka samkeppni um Íslensku barnabókaverðlaunin. Nú er auglýst eftir handritum í keppni þessa árs. Handritið skal vera skáldsaga fyrir börn og unglinga að lágmarki 50 blaðsíður að lengd, og ekki er gert ráð fyrir því að verðlaunasagan verði myndskreytt.

Skilafrestur er til 1. febrúar næstkomandi. Dómnefnd velur besta handritið og kemur það út hjá Forlaginu í haust. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk höfundalauna.

Meðal verðlaunahafa fyrri ára má nefna þau Ragnheiði Gestsdóttur, Þorgrím Þráinsson, Yrsu Sigurðardóttur og nú síðast Bryndísi Björgvinsdóttur með bókina Flugan sem stöðvaði stríðið.

Handritum skal skila í fjórriti til:

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Forlagið
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík

Handrit á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi.

Handrit eru ekki endursend en hægt verður að nálgast þau hjá Forlaginu á tímabilinu 1. maí til 1. október 2012.

Frekari upplýsingar veitir Sigþrúður Gunnarsdóttir í síma 575 5604 / sigthrudur@forlagid.is.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Leitað að verki

Höfundur:
Ritverk:


Skipta um leturstærð


Tungumál