Bókmenntaborgin Reykjavík og Vinnuskóli Reykjavíkur taka höndum saman nú í júlí og stensla línur úr ljóðum íslenskra skálda á stéttar í borginni. Vegfarendur geta því séð unga fólkið mála ljóðastiklur víða í miðbænum þessa dagana, meðal annars þessar línur úr Morgunljóði Lindu Vilhjálmsdóttur:
ég er úr
ljósi og lofti
yfir mér
svífandi sjófugl
undir mér
lína úr ljóði
hafið
er skínandi bjart
Göturnar eru því svo sannarlega fullar af ljóði í sumar, eins og segir í samnefndu ljóði Einar Ólafssonar, í bókstaflegum skilningi. Verkefnið miðar að því að vekja athygli borgarbúa og gesta á íslenskum skáldskap, um leið og lífgað er upp á borgarlífið og Bókmenntaborgin Reykjavík er kynnt.
Ljóðlínurnar eru úr ljóðum tólf skálda og eru þær bæði á íslensku og í enskri þýðingu. Þær prýða gangstéttar í Austurstræti, á Laugavegi, á göngustígnum við Sæbrautina svo og við gömlu höfnina.
Ein stiklan er eftir Einar Má Guðmundsson úr ljóðinu Ræðupúlti örlaganna. Hann las það upp á Laugaveginum í gær, þann 5. júlí, á meðan ljóðið var málað á stéttina.
Ljóðin sem prýða munu göturnar í sumar eru:
Gamla höfnin
Stefán Hörður Grímsson: Spor
Kristín Ómarsdóttir: Dúfurnar hvítu
Gerður Kristný: Nótt
Sæbraut
Jóhann Sigurjónsson: Heimþrá
Sigurbjörg Þrastardóttir: Akrafjall
Ingibjörg Haraldsdóttir: Svar
Austurstræti
Halldór Laxness: Bráðum kemur betri tíð
Pétur Gunnarsson: Einn
Vilborg Dagbjartsdóttir: Ættjarðarást
Laugavegur
Sjón: Söngur steinasafnarans
Einar Már Guðmundsson: Ræðupúlt örlaganna
Linda Vilhjálmsdóttir: Morgunljóð
Til baka