Frostfiðrildin
Ár: 2006 Staður: Reykjavík Útgefandi: Mál og menning
|
|
|
Úr Frostfiðrildum:
nú veit ég það loksins
elskan mín
veit að hamingjan
er eins og æðardúnn
sem svífur
í loftinu á milli okkar
það er langt síðan
ég hef horft á þig sofa
langt síðan ég hef hlustað
í andakt á háværar hroturnar
langt síðan ég hef leitað að vissu
í óræðum svipbrigðum sofandi manns
langt síðan ég hef fundið ylinn frá þér
leggjast eins og lopa við húðina á mér
langt síðan ég hef haldið óhreina andanum
niðrí mér til að trufla ekki draumana þína
Til baka