Enn bætast nýir höfundar við strollu hinna pennafæru hér á Bókmenntavefnum. Í þessu samhengi sem öðru er undarlegt að tala um nýtt eða ekki, enda er ekkert nýtt undir sólinni nema hvert einasta skref. Auk þess sem nýtt merkir ónýtt, og öfugt! Það er vart meira á mann lagt.
Úlfar Þormóðsson hefur ort, ritað og samið til fjölda ára en er nú nýjasta viðbót okkar á vefnum. Á síðustu árum hefur hann helgað sig ritstörfum eingöngu; veturinn 2008 sendi hann frá sér geypimikla skáldsögu um ævi Hallgríms Péturssonar og nú síðast komu Farandskuggar, sem snýst einnig um leit að glötuðum tíma en á annan máta þó, eins og fram kemur í umfjöllun Úlfhildar Dagsdóttur hér á vefnum.
Sjá síður Úlfars hér á bókmenntir.is.
Til baka