Myrká

Arnaldur Indriðason.

Vaka-Helgafell, 2008

...þarna er efinn

Það er eitthvað svolítið viðkvæmnislegur blær yfir sögu Arnaldar Indriðasonar að þessu sinni. Ekki þó á þann hátt að sagan sé ljúf eða blíð; Myrká er, eins og nafnið gefur til kynna drungaleg og grimm glæpasaga. Það er frekar nálgun höfundar og byggingin öll sem virkar viðkvæm, næstum á mörkum þess að sundrast - en gerir það þó einmitt ekki. Þetta kemur meðal annars fram í því að hér tekur Arnaldur smá hliðarspor, Myrká er enn eitt dæmið um hvernig þessi vinsæli höfundur er óhræddur við að feta nýjar slóðir og hætta sér jafnvel út á ystu nöf í tilraunum með form og viðfangsefni. Tilbrigðið hér felst í því að nú er Erlendur fjarri. Hann er rétt nefndur á nafn nokkrum sinnum með tilvísunum til atburða úr Harðskafa, bókarinnar á undan Myrká, og Elínborg er í aðalhlutverki, rannsókn glæpsins er í hennar höndum. Sigurður Óli kemur aðeins fyrir, en er sömuleiðis á hliðarlínunni. Elínborg er hér í sömu stöðu og Erlendur í fyrri bókum, við kynnumst heimilisaðstæðum hennar, vangaveltum um starfið og svo auðvitað vinnulagi og aðferðum, sem eru allólíkar tækni þeirra Erlendar og Sigurðar Óla. Allt þetta er ákaflega áhugavert og vel gert en kannski dálítið of táknrænt þegar til þess er tekið að glæpurinn fjallar að þessu sinni um nauðgun. Arnaldur hefur áður komið inná nauðganir í bókum sínum og sýnt framá nærgætni gagnvart slíkum glæpum og fórnarlömbum þeirra (ein heimskulegasta breytingin í kvikmyndaaðlöguninni á Mýrinni var að taka út nauðgunina þar sem var lykilatriði fyrir rannsókn málsins), en hér er umfjöllunin mun ágengari.

Ungur maður finnst myrtur í íbúð sinni, skorinn á háls. Ummerki á vettvangi sýna að þar hefur verið ung kona og hinn myrti ber þess merki að hafa haft kynmök, en þegar svefnlyfið rohypnol finnst í eigu hins látna koma fram grunsemdir um vafasamt háttalag hans. Elínborg ræðir við fórnarlömb slíkra nauðgana og upplifir sterkt hversu skelfilegur glæpurinn er og samhliða þessu er deilt hart á þær vægu refsingar sem kynferðisglæpamenn fá. Hún kynnir sér fortíð hins myrta og kemst að því að hann er ættaður utan að landi úr smáþorpi, sem hún heimsækir. Lýsingarnar á því eru ákaflega myrkar, fyrir utan illviðri og myrkur þá virðist þorpið þrungið leyndardómum. Hér sýnir Arnaldur að hann getur vel skapað ókennilegt og dulúðugt andrúmsloft ef honum svo líkar, en jafnframt stingur lýsingin óneitanlega dálítið í stúf við annars háraunsæislegt yfirbragð sögunnar.

Hér verður ekki farið nánar út í söguþráðinn enda ekki til neitt verra en að skemma góða glæpasögu fyrir lesendum. Sem fyrr koma fram ýmsar vísbendingar sem Elínborg lætur í fyrstu framhjá sér fara en vanur lesandi áttar sig á að eru þýðingarmiklar og sem fyrr þáttar Arnaldur fimlega saman ýmsa þræði sem að lokum falla í einn ákaflega þéttan vef. Því þrátt fyrir þær efasemdir sem ég hafði um það að láta konu leika aðalhlutverkið í bók sem fjallar um þann skelfilega glæp sem nauðgun er og hið forneskjulega andrúmsloft í þorpinu, þá er niðurstaðan sú að allt er eins og á að vera: höfundur hefur alla þræði í hendi sér, vefur þá fullkomlega saman og spilar í leiðinni á nýja strengi (án þess þó að ofhlaða myndmál sitt eins og í setningunni hér á undan).

Það kemur til af því að þessi ‘viðkvæmni’, sem ég kalla svo, er hreinlega byggð inn í söguna sem fjallar, eins og önnur verk Arnaldar og allar góðar glæpasögur, ekki bara um þetta tiltekna morð, heldur um stærri spurningar og samfélagsleg átakamál. „Hver er svo sekur?” segir í dægurlagatexta og „Hvenær drepur maður mann?” spurði Jón Hreggviðsson. Myrká tekst á við grundvallarspurningar tengdar glæpum, spurningar um réttlæti og refsingar: spurningar sem leita á lesenda löngu eftir að lestri er lokið.

Úlfhildur Dagsdóttir, nóvember 2008


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Vargurinn | 16.06.2010
Skáldsagan Vargurinn gerist mestan part á Seyðisfirði. Rannsóknarlögreglumaðurinn Valdimar Eggertsson er þangað sendur til að rannsaka grunsamlegan eldsvoða. ...
Villibörn | 16.06.2010
Náttúruvernd hefur verið mörgum rithöfundum uppspretta skáldskapar og nú undanfarið hafa listamenn farið framarlega í umræðu um umhverfið og mikilvægi þess að ganga varlega að hagnýtingu náttúruauðlinda. ...
Skuggi Rökkva | 16.06.2010
Jean Antoine Posocco er franskur að uppruna en hefur sinnt íslenskum myndasögum af miklu afli. Fyrir utan að halda myndasögutímaritinu Bleki gangandi um áraraðir, þá hefur hann sent frá sér ákaflega íslenskar myndasögur um jólasveina og tröll, sem eiga rætur í íslenskum þjóðsögum og ævintýrum. ...
Margmiðlun er orðin að sjálfsögðu fyrirbæri í samtímanum. Nútímamanneskjan er orðin vön því að taka inn upplýsingar á margvíslegan máta, í máli, myndum og hljóði. ...
Land tækifæranna | 22.03.2010
Í Landi tækifæranna hitta lesendur aftur lögguteymi Ævars, þau Árna, Guðna, Katrínu og Stefán. Þetta er fimmta bókin þar sem þau eru í aðalhlutverki, en nú eru tvö ár síðan Sá yðar sem syndlaus er, sú fjórða í röðinni, kom út. ...
Konur | 22.03.2010
Það er alltaf dálítið einkennilegt að lesa bók sem hefur verið hlaðin lofi og eiga svo að fjalla um hana nokkru eftir að hún (og lofið) kom út. Nýjustu skáldsögu Steinars Braga, Konur, var beðið með mikilli eftirvæntingu og voru fregnir af frábærleik hennar farnar að birtast löngu á undan bókinni sjálfri. ...
Karlar sem hata konur er fyrsta bókin í svokallaðri Millennium þrílógíu eftir sænska blaðamanninn og rithöfundinn Stieg Larsson. Larsson lést langt um aldur fram, rétt áður en fyrsta bókin kom út í Svíþjóð árið 2005. ...
Nú er ekki liðið ár síðan ég skrifaði um þrjár nýjustu bækur Hugleiks Dagssonar, sem þá voru Eineygði kötturinn kisi og leyndarmálið, Kaupið okkur og Ókei bæ. ...
Það er til frægt og ægifagurt landakort af Íslandi sem sýnir landið umkringt skrýmslum af ýmsu tagi. Fyrir nokkrum árum gerði listakonan Hulda Hákon lágmyndir af nokkrum þessara skrýmsla og hafa þær notið mikilla vinsælda æ síðan. ...
Í hendi Guðs | 22.03.2010
Það fór ekki hjá því að mann sundlaði öðru hvoru við lestur Í hendi Guðs eftir Niccolò Ammaniti, svo mörg voru fylleríin, svo mikil ölvunin, svo magnaðir timburmennirnir, að það var eins og stæðu áfengisgufur upp af bókinni þar sem hún lá á sófaborðinu. ...


Leitað að verki

Höfundur:
Ritverk:


Skipta um leturstærð


Tungumál