Trúir þú á töfra?

Vigdís Grímsdóttir

JPV útgáfa, 2011

Leikhús alræðisins

Listin er viðfangsefni þriggja nýrra skáldsagna eftir konur: Bónusstelpunnar eftir Rögnu Sigurðardóttur, Allt með kossi vekur eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Trúir þú á töfra? eftir Vigdísi Grímsdóttur. Það er athyglisvert að sjá hvernig þessar ólíku skáldkonur fjalla á ólíkan hátt um listina, en eiga það samt sameiginlegt að líta til listarinnar sem afls skilnings og vakningar.

Bókmenntirnar eru hvað fyrirferðarmestar í sögu Vigdísar Grímsdóttur, Trúir þú á töfra? en þar er mikið fjallað um ljóð og skáld og sagan inniheldur fjölmargar tilvitnanir í íslensk skáldverk, auk þess sem Vilhjálmur Shakespeare fær að fljóta með. Trúir þú á töfra er framtíðarsaga sem gerist í óljósri framtíð, mögulega árið 2020, en fram kemur að tólf ár eru liðin frá því að forsætisráðherrann bað guð að blessa landið. Hér má vel greina tilvísun til kreppunnar og þar með að velta fyrir sér að hversu miklu leyti sagan, sem fjallar um alræði sem leikhús einhverskonar fáránleika, sé að kanna hlutverk listarinnar í þeirri hugmyndalegu þeytivindu sem einkennt hefur undanfarinn áratug.

Sagan er sögð í fyrstu persónu af stúlku sem elst upp í þorpi sem er afgirt af múr og ennfremur lokað undir glerkúpli. Þorpinu er stjórnað af óþekktum aðilum sem eru að gera tilraun með fólkið í þorpinu – það eru þeir sem stjórna leikritinu og úthluta hlutverkum. Af þessum aðilum stafar nokkurri ógn. Þorpsbúar verða að leika sín hlutverk og þorpið er í raun einskonar leikhús. Stúlkan sem heitir Nína Björk eins og skáldkonan heitin er von þorpsins, hún er ljósgeislinn í lífinu og hún er elskar skáldskap og málar myndir á múrinn sem umlykur þorpið, kattamyndirnar sem eru leiktjöldin – og urðu Vigdísi innblástur að sögunni. Og það er ljóst að stúlkan á að vera táknmynd listarinnar og skáldskaparins sem getur frelsað fólkið.

Sagan er ákaflega ljóðræn og stíllinn oft mjög fallegur, og sagan er mjög í anda verka Vigdísar, mikil áhersla lögð á persónusköpun og tilfinningaríkar persónur og dálitla dramatík. Umfram allt fjallar sagan um skáldskap og list, og í raun má segja að heimur sögunnar sé heimur skáldskaparins og ljóðsins, en eins og fram hefur komið er mikið vitnað í skáldskap, aðallega Nínu Bjarkar, en einnig önnur skáld og svo ýtir leikhústengingin enn undir þá tilfinningu að hér sé verið að kanna einskonar skáldlegan heim þarsem ímyndunaraflið ræður ríkjum. En hverjir eru þá þeir sem stjórna þorpinu? Trúir þú á töfra? er ekki einföld táknsaga eða dæmisaga og stundum fannst mér sem lesanda að ég væri dálítið ráðvillt í mínu hlutverki í þessu leikhúsi. Það er ekki auðvelt að átta sig á hvert Vigdís er að fara með sögunni og þó að ég ætlist ekki til að fá vandlega innpakkaðar skýringar í lokin þá fannst mér á stundum að það væru of margir þræðir sem röknuðu upp í stað þess að bindast saman. Hverjir eru þeir sem ráða? Hvaða ógn stafar í raun af þeim? Hvers eðlis er þessi tilraun? Hvert er hlutverk kattamyndlíkinganna og –leiktjaldanna? Spurningarnar hrannast upp og þeim er ekki svarað, en kannski er það málið, að færa lesandann inn í heim sem býður ekki upp á neinar lausnir né útskýringar: heim sem er að því leyti eins og okkar heimur.

Því að mörgu leyti minnir sagan líka á venjulega þorpssögu, þar sem lesandi er kynntur fyrir þorpsbúum og fær að heyra sögu þeirra. Þessar sögur tengjast allar sögu stúlkunnar að einhverju leyti og þannig er dregin upp nokkuð hefðbundinn heimur smáþorps. Þessi hlið verksins gefur til kynna að í raun megi einnig skoða bókina sem hversdagslega sögu um líf í föstum skorðum, þar sem allir eiga sér sín hlutverk sem þeir finna sig knúna til að fylgja, burtséð frá eigin löngunum og þrám, og enn á ný er það hlutverk listarinnar að skapa gleði, fjölbreytni og liti í tilveruna.

Úlfhildur Dagsdóttir, desember 2011.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Upp á líf og dauða
Hvað gerir maður ef maður finnur mjög sorglegt ljóð í blaðarusli eftir verkefnavinnu með bekkjarfélögunum? Ef tilfinningarnar sem er lýst í ljóðinu eru áberandi vonleysislegar og birta mikla vanlíðan hlýtur manni að bera skylda til að finna þann sem skrifaði ljóðið og hjálpa honum, eða hvað? Og hvernig kemur maður einhverjum til hjálpar þegar maður veit ekki einu sinni hver það er? Í Upp á líf og dauða er tekið á þunglyndi og sjálfsvígshugsunum og því hvernig ekki er alltaf hægt að sjá utan á fólki hvernig því líður, alvarlegum málefnum sem snerta líf og hugsanir margra unglinga. ...
Náttúrugripasafnið
Náttúrugripasafnið er nýjasta bók Sigrúnar Eldjárn og er sjálfstætt framhald af Forngripasafninu sem kom út í fyrra. Nokkrir söguþræðir fléttast saman en söguhetjan Rúnar er í upphafi bókar staddur í heimsókn hjá mömmu sinni í New York. Þar rambar hann inn í mjög skrítna verslun með náttúrugripi þar sem hann finnur hinar fullkomnu gjafir fyrir vini sína, Möggu og Lilla. Hjónin sem reka búðina afhenda honum afskaplega furðulegan pakka sem hann ákveður þrátt fyrir efasemdir að taka með sér til Íslands. Fljótlega tekur hann eftir skuggalegum manni með sólgleraugu sem virðist vera alls staðar þar sem Rúnar er. ...
Dagbók Ólafíu Arndísar
Dagbók Ólafíu Arndísar er önnur bókin um hina ungu, bráðsnjöllu og skemmtilegu Ólafíu Arndísi. Fyrri bókin, Flateyjarbréfin, kom út á síðasta ári en þar skrifar Ólafía Arndís bréf til kennarans síns á meðan hún er í sumarfríi. Núna er aftur komið sumarfrí og henni hefur áskotnast dagbók sem kemur sér einstaklega vel þegar maður þarf mikið að tjá sig en hefur ákveðið að tala hvorki við fjölskylduna eða nokkurn annan mann, alla vega tímabundið. Ólafía Arndís skrifar í staðinn af miklum móð um allt sem á daga hennar drífur þetta sumarið. ...
Sálumessa
Í Sálumessu tekur Ari Trausti fyrir fimm tímabil í sögu landsins og skrifar út frá þeim langar smásögur eða eiginlega fimm nóvellur. Þættirnir gerast á söguöld, um Siðaskiptin, á fyrri hluta 19. aldar, snemma á síðustu öld og sá síðasti í nútímanum. ...
Valeyrarvalsinn
Valeyrarvalsinn | 05.12.2011
Frásagnir af lífinu í smábæjum og þorpum eru nokkuð áberandi minni í íslenskum bókmenntum. Kannski er það ekki að furða því þótt stór hluti þjóðarinnar búi núorðið í borginni eða stærri samfélögum hafa langflest okkar einhver tengsl við þorpin og smábæina, hvort sem það er í okkar eigin nútíð eða í gegnum eldri kynslóðir. Hvernig sem því er farið er þó ljóst að smábærinn í bókmenntum hefur yfir sér eitthvað heillandi og forvitnilegt, andrúmsloft sem er fjarlægt en á sama tíma svo nálægt. Í Valeyrarvalsi Guðmundar Andra Thorssonar er sagt frá lífinu í einu af þessum þorpum þar sem allt virðist fara fram fyrir opnum tjöldum en ýmislegt er samt sem áður dulið, jafnvel þaggað niður og bælt eða einfaldlega grafið djúpt í fortíðinni. Undir yfirborðinu bærast flóknar tilfinningar og minningar fullar af trega. ...
Allt með kossi vekur
Síðasta skáldsaga Guðrúnar Evu Mínervudóttur hét Skaparinn. Nýja bókin hennar, Allt með kossi vekur, fjallar um sköpunarkraft, og hefst á sköpunarsögu Biblíunnar, eða einskonar útgáfu sögunnar af Adam og Evu í aldingarðinum og fallinu fræga. Sú saga birtist okkur í myndasöguformi og bókin innheldur að auki aðra myndasögu og eina myndskreytta sögu, en þær eru allar teiknaðar af Sunnu Sigurðardóttur. Það er einmitt myndasöguhöfundur sem er ástæða þess að sögumaðurinn, Davíð, segir söguna sem birtist okkur í Allt með kossi vekur, en hann fær sendar eigur stjúpföður síns, Þorláks eða Láka, sem dáinn er fyrir nokkru. Meðal pappíranna eru nokkrar myndasögur, en Láki var þekktur myndasöguhöfundur, bæði á Íslandi og erlendis. ...
Jarðnæði
Jarðnæði | 02.12.2011
Emma Kennedy, breskur grínisti, leikkona og öflugur twittari, lét byggja fyrir sig skúr um daginn – við enda bakgarðsins, þar sem hún hefði ró og næði til sköpunar og skrifta. Hún lýsti fjálglega gleðinni, frelsinu, næðinu sem þessu fylgdi (og ánægjunni með smiðinn sem batt um skúrinn svona fínan borða). ...
Minni líkur meiri von
Hvernig er að vera bara venjuleg stelpa en eiga pabba sem vinnur hættulegt starf, pabba sem maður þarf stöðugt að vera að hafa áhyggjur af? Hvernig á venjuleg stelpa að skilja hvað vakir fyrir manni sem vill vinna á hættulegum stöðum og hvernig tekst maður á við það þegar eitthvað kemur fyrir? Marjolijn Hof er þekktur hollenskur barnabókahöfundur en fyrir bókina Minni líkur meiri von hefur hún hlotið virt barnabókaverðlaun í Hollandi. Bókin hefur verið kvikmynduð þar í landi og hefur myndin líkt og bókin vakið mikla lukku. Nú er hún komin út í íslenskri þýðingu Jónu Dóru Óskarsdóttur. ...
Trúir þú á töfra?
Listin er viðfangsefni þriggja nýrra skáldsagna eftir konur: Bónusstelpunnar eftir Rögnu Sigurðardóttur, Allt með kossi vekur eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Trúir þú á töfra? eftir Vigdísi Grímsdóttur. Það er athyglisvert að sjá hvernig þessar ólíku skáldkonur fjalla á ólíkan hátt um listina, en eiga það samt sameiginlegt að líta til listarinnar sem afls skilnings og vakningar. Bókmenntirnar eru hvað fyrirferðarmestar í sögu Vigdísar Grímsdóttur, Trúir þú á töfra? en þar er mikið fjallað um ljóð og skáld og sagan inniheldur fjölmargar tilvitnanir í íslensk skáldverk, auk þess sem Vilhjálmur Shakespeare fær að fljóta með. ...
Játningar mjólkufernuskálds
Unglingabækur eru sívinsælt bókmenntaform, yfirleitt koma nokkrar slíkar út á hverju ári og verður að segjast eins og er að þær eru æði misjafnar. Það vill loða við þessa tegund bóka að bæði persónusköpun og söguþráður séu klisjukennd og boðskapnum ausið yfir lesandann eins og enginn sé morgundagurinn. Sem betur fer eru ekki allar unglingabækur þannig og auðvitað leynast margar mjög góðar bækur í flórunni því unglingabókmenntir bjóða upp á fjölbreytt umfjöllunarefni og geta hæglega speglað allt litróf lífsins, frá því neikvæða til þess jákvæða, ástir, dramatík, spennu og gamansemi og ef bók af þessu tagi á að ganga upp er ekki verra að hún hafi sitt lítið af hverju. Mikilvægast af öllu er kannski að í henni sé jafnvægi milli þessara þátta og að ljós sé að finna við enda ganganna. Játningar mjólkurfernuskálds eftir Arndísi Þórarinsdóttur er unglingabók sem fellur í síðarnefndan flokkinn. Þetta er fyrsta skáldsaga Arndísar og það er sko enginn byrjendabragur á henni. ...


Leitað að verki

Höfundur:
Ritverk:


Skipta um leturstærð


Tungumál