(Vilborg) Yrsa Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík 24. ágúst 1963. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1983, lauk B.Sc.-prófi frá Háskóla Íslands í byggingarverkfræði 1988 og M.Sc.-prófi í sömu fræðum frá Concordia University í Montreal í Kanada 1997. Yrsa starfar sem byggingarverkfræðingur við framkvæmdaeftirlit á Kárahnjúkum auk þess sem hún stundar ritstörf.
Yrsa sendi frá sér sína fyrstu barnabók, Þar lágu Danir í því, árið 1998. Árið 2000 hlaut hún Viðurkenningu Barnabókaráðs Íslands, Íslandsdeildar IBBY, fyrir bókina Við viljum jólin í júlí og 2003 hlaut hún Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir söguna Biobörn. Fyrsta skáldsaga Yrsu fyrir fullorðna, glæpasagan Þriðja táknið, kom út hjá bókaútgáfunni Veröld 2005. Ári síðar kom svo út sagan Sér grefur gröf þar sem lögfræðingurinn Þóra heldur áfram að fást við dularfull sakamál og síðan hafa fleiri sögur um Þóru bæst í hópinn. Útgáfuréttur bókanna um Þóru hefur verið seldur til fjölmargra landa og hafa þær komið út í þýðingum víða um heim. Nýjasta afurð Yrsu er spennusagan Ég man þig (2010), sem er sú fyrsta sem ekki fjallar um Þóru.
Yrsa býr á Seltjarnarnesi. Hún er gift og á tvö börn.
Forlag: Veröld.
Til baka