Bragi fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1962. Hann nam spænsku við Háskóla Íslands í einn vetur og við Háskólann í Granada á Spáni 1985 - 1986. Hann hefur unnið ýmis störf í Reykjavík, á póstinum, í banka og plötubúð og var um árabil liðsmaður ýmissa hljómsveita, meðal annars Sykurmolanna og ferðaðist með sveitinni víða um lönd.
Fyrsta bók hans, ljóðabókin Dragsúgur, kom út árið 1986 og síðan hefur hann sent frá sér ljóðabækur, smásagnasafn, leikrit og skáldsögur. Fyrsta skáldsaga hans, Hvíldardagar, var tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1999 og sú næsta, Gæludýrin, einnig árið 2001. Bragi hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum 2004 fyrir skáldsöguna Samkvæmisleikir. Sendiherrann var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2008.
Bragi er einn af stofnendum útgáfufélagsins Smekkleysu sem gefið hefur út texta og tónlist og staðið fyrir uppákomum af ýmsu tagi. Bragi hefur þýtt ljóð og skáldsöguna Glerborgin eftir Paul Auster. Verk hans hafa birst í erlendum þýðingum.
Bragi er kvæntur og á fjögur börn. Hann býr í Reykjavík.
Forlag: Mál og menning.
Mynd af höfundi: Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Sjá einnig vef Braga Ólafssonar
Til baka