Kristín Ómarsdóttir

Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1981 og stundaði síðan nám í íslensku, almennri bókmenntafræði og spænsku við Háskóla Íslands. Kristín hefur dvalist í Kaupmannahöfn og Barcelona en býr nú og starfar í Reykjavík.

Kristín hefur jöfnum höndum fengist við ljóða- og skáldsagnagerð, smásögur og leikritun. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Skáldsagan Elskan mín ég dey tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999 og leikrit hennar, Ástarsaga 3, var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna. Árið 2005 fékk hún Grímuverðlaunin, sem leikskáld ársins, fyrir leikritið Segðu mér allt. Fyrir ljóðabókina Sjáðu fegurð þína hlaut hún Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta árið 2008. Kristín hefur einnig unnið að myndlist, sýnt teikningar sínar, og verið í samstarfi við myndlistarfólk, meðal annars Harald Jónsson, Ann Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttur og ljósmyndarann Nönnu Bisp Büchert. Þá hefur hún unnið með myndlistarkonunni Gunnhildi Hauksdóttir að sýningarröðinni Audition, sem sýnd hefur verið í Kanada, Íslandi og á Norður Írlandi.


Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á sænsku, frönsku og finnsku og ljóð hennar hafa birst í erlendum safnritum. 


Forlag: JPV útgáfa.

Mynd af höfundi: Sveinbjörg Bjarnadóttir.


Til baka


Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook



Skipta um leturstærð


Tungumál