Meistaraverkið
Ár: 2011 Staður: Reykjavík Útgefandi: JPV-útgáfa
|
|
|
Bókin er fyrsta smásagnasafn Ólafs Gunnarssonar.
Um Meistaraverkið:
Í smásögunum leikur Ólafur á ýmsa strengi. Í titilsögunni segir frá dreng sem bíður þess í ofvæni að sjá teikninguna sína á sýningu skólans en í sögunni Nasistinn upplifir íslenskur nasisti meiri hrylling en hann hafði órað fyrir. Hér segir líka frá Íslendingi sem barðist í Víetnam, gömlum rokksöngvara sem fær óvænt tækifæri til að stíga á svið með stórstjörnu, súludansmey sem fer að búa í Vogahverfinu með íslenskum bifvélavirkja og ótal fleiri litríkum persónum. Ýmsum mun svo þykja fróðlegt að heyra af manninum sem varð að stela húsinu sínu árið sem Ísland varð lýðveldi.
Til baka