Hér á vefnum er hægt að kynna sér nýjar og eldri bækur með því að lesa valin brot úr þeim. Það er gert með því að velja höfund í höfundalista og smella síðan á tengilinn Textabrot efst á forsíðu höfundarins. Bækurnar geta verið hvort sem er frumsamdar á íslensku eða þýðingar þeirra höfunda, sem eiga síður á vefnum, á skáldskap erlendra kollega sinna.
Það má segja að þessi liður síðunnar hafi legið í dvala undanfarnar vikur, en vaknar nú til lífsins samferða mýflugum, túlípönum og sláttuvélum. Textabrot vikunnar nú í blábyrjun júnímánaðar höfum við úr fyrstu bók Friðriks Erlingssonar, Benjamín dúfu, en hún fjallar – eins og svo margar góðar barnabækur – um ævintýrin sem hefjast þegar skólanum sleppir. Hún var nýverið endurútgefin hjá Veröld og það innbundin, en áður hefur hún tvisvar verið endurútgefin síðan hún kom fyrst út fyrir tuttugu árum síðan. Bókin fjallar um fjóra stráka sem búa í sama hverfi, einn af þeim er nýfluttur til landsins og drífur hina nýju félaga sína til að stofna með sér riddarareglu Rauða drekans.
Í brotinu sem hér fylgir lýsir sögumaður því hvernig strákarnir (og mæður þeirra) leggja lokahönd á búninga riddaranna.
Lesið textabrotið hér.
Til baka