Áróru líður betur eftir að lík systur hennar fannst í hraungjótu á Reykjanesi – hún getur loks hætt að leita. En málið er enn óleyst, því að kærastinn sem var talinn hafa drepið Ísafold fannst á sama stað, einnig myrtur. Og þegar Áróra fær vitneskju um óhugnanlegt atriði í tengslum við líkfundinn munar litlu að hún missi tökin á tilverunni. Til að dreifa huganum einbeitir hún sér að peningaþvættismáli sem Daníel vinur hennar er með til rannsóknar. Þar leynist þó fleira undir yfirborðinu og enn á ný liggja þræðirnir í Engihjallann, þar sem Ísafold lifði og dó …. .