um bókina
Meðhöfundur: Pétur Þorleifsson.
Ýmis fróðleikur er birtur um fjöllin og jarðfræði þeirra og iðulega rifjaðar upp fornar sagnir tengdar þeim. Gönguleiðum, jafnt auðveldum sem erfiðum, er lýst svo að lesendur velkist ekki í vafa um hvernig komast má á toppinn. Kort sem sýna gönguleiðina eru birt með hverjum tindi auk ljósmyndar af fjallinu. Grunnupplýsingar, eins og hæð, gönguhækkun, göngulengd og göngutími, eru dregnar saman fyrir hvert fjall. Þá eru leiðunum gefnar fjórar einkunnir (birtar sem súlurit) svo hægt sé að meta þær í einni sjónhendingu.