Beint í efni

Glerþræðirnir

Glerþræðirnir
Höfundur
Magnús Sigurðsson
Útgefandi
Dimma
Staður
Reykjavík
Ár
2024
Flokkur
Smáprósar,
 Smásögur,
 Skáldsögur

Um bókina

Í Glerþráðunum er atvikum og persónum úr sögu lands og þjóðar teflt fram gegn lífsskilyrðum nútímans. Hér er þó ekki tekið mið af stórviðburðum Íslandssögunnar heldur sagðar hversdagssögur af mönnum og málleysingjum, af þeirri fundvísi sem einkennir fyrri verk höfundar.
Vitnisburðir ljósmæðra og flakkara um lífið í landinu eru raktir; sagt er frá hundafeiti í lækningaskyni, óútskýrðum fjárráðum Guðríðar Símonardóttur og óslökkvandi Danahatri Gísla Brynjúlfssonar; útskýrt er hvers vegna kvenlíkaminn var um skeið helsti keppinautur Guðs um sálarheill karlmannsins og hvernig endurreisn íslenskunnar átti sér stað á hjónasæng Sveinbjarnar Egilssonar og Helgu Benediktsdóttur Gröndal. Og er þá aðeins fátt eitt nefnt.

Úr bókinni

Fjölærar formæður

Um tengdamóður sína Sesselju Guðmundsdóttur, sem hafði lært skrift og hugarreiknig upp á eigin spýtur í laumi, af því að allt uppeldi konunnar miðaði við hið verklega í þá daga, sem mátti sjá á eftir fimm af tíu börnum í gröfina áður en hún missti eiginmann sinn úr ótilgreindum sjúkdómi, og stóð þá uppi ein með börnin sem eftir voru og hraktists víða, sem fæddist í torfbæ en dó í borg og kunni Passíusálmana utan að, sem æðraðist ekki og brotnaði ekki, drýgði mat sinn með fjallagrösum og sölum og varð að lokum meira en 100 ára gömul, um hana sagði rithöfundurinn Elínborg Lárusdóttir að jafnvel fram í fimmta eða sjötta ættlið - sem sagt um það bil núna, anno 2024 - mætti enn eiga von á að fram kæmi kona sem líktist henni að andlegu og líkamlegu atgervi, bæri svip hennar ættarmóts og eðlis, hennar sem hefði verið sterkasta stoðin í fjölskyldunni og sú sem allt bar uppi, vegna þess að slíkar konur sem hún, hvaða nafni sem þær nefnast, þessar óbugandi formæður, þrekið og stillingin uppmáluð, þær hafi á sinni löngu og ströngu ævi „gróðursett svo mörg frækorn á leið sinni“ að þær halda í raun og veru áfram að lifa, bæði í tímalegum og andlegum skilningi, löngu eftir þeirra dag.

(s.82)

Fleira eftir sama höfund

Blindir fiskar

Lesa meira

Hálmstráin

Lesa meira

Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu

Lesa meira
húslestur

Húslestur : Ritgerðir

Í fábreytni bændasamfélagsins gat húslesturinn rofið einangrun afdalsins og opnað glugga inn í framandi heima.
Lesa meira
lexíurnar : stafrófskver

Lexíurnar : stafrófskver

Hér er tekið mið af bókmenntaformi stafrófskveranna gömlu, kennslubóka sem höfðu það hlutverk að vígja börn og ungmenni inn í töfraheima leslistarinnar. En ekki síður átti lesmálið að geyma uppbyggilegar lexíur og heilræði sem gætu nýst ungum lesendum sem eins konar veganesti út í lífið síðar meir. 
Lesa meira