um bókina
Þótt Gríma Pálsdóttir búi í þorpi þar sem allt snýst um fisk, er hún ekki gerð fyrir fiskvinnu og ætlar sér ekki að verða sjómannskona. Hún stefnir hærra og dreymir um annað og litríkara líf. Metnaður hennar og óhefðbundin framkoma, ekki síst gagnvart karlmönnum, kemur hins vegar miklu róti á hið venjubundna þorpslíf og brátt hriktir í öllum stoðum.