Hér eru ljóð og lög Sveinbjörns I. Baldvinssonar gefin út samtímis á hljómdiski og bók með litmyndum Önnu V. Gunnarsdóttur.
úr bókinni
Lagið um það sem er bannað
Það má ekki pissa bakvið hurð
og ekki henda grjóti oní skurð.
Ekki fara í bæinn
og kaupa popp og tyggjó
ekki nota skrúfjárn fyrir sleikjó.
Það má ekki vaða út í sjó
og ekki fylla húfuna af snjó.
Ekki tína blómin,
sem eru úti beði,
ekki segja ráddi, heldur réði.
Þetta fullorðan fólk er svo skrýtið,
það er alltaf að skamma mann,
þó maður geri ekki neitt.
Það er alltaf að skamma mann.
Það má ekki skoða lítinn kall
og ekki gefa ketti drullumall.
Ekki skjóta pabba
með byssunni frá ömmu
og ekki tína orma handa mömmu.
Það má ekki hjóla inn í búð
og ekki gefa litla bróður snúð.
Ekki fara að hlæja
þó einhver sé að detta,
ekki gera hitt og ekki þetta.
Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið,
það er alltaf að skamma mann,
þó maður geri ekki neitt.
Það er alltaf að skamma mann.
(10)