Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur voru stofnuð árið 2018 til heiðurs Guðrúnu Helgadóttur rithöfundi og fyrst veitt í apríl 2019. Reykjavíkurborg veitir verðlaunin árlega fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og er þeim ætlað að styðja við nýsköpun í greininni.
Dómnefnd verðlaunanna er skipuð þremur einstaklingum tilnefndum af menningar-, íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og Rithöfundsambandi Íslands.
2024
Ævar Þór Benediktsson: Skólastjórinn. Bókin kemur út hjá Forlaginu 2025.
2023
Kamilla Kjerúlf: Leyndardómar draumaríkisins. Bókin kom út hjá Bjarti/Veröld sama ár.
2022
Verðlaunin voru ekki veitt. Ekkert þeirra handrita sem barst dómnefnd uppfyllti kröfur nefndarinnar til verðlaunaverka.
2021
Margrét Tryggvadóttir: Sterk. Bókin kom út hjá Máli og menningu sama ár.
2020
Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sif Bjarnadóttir: Blokkin á heimsenda. Bókin kom út hjá Forlaginu sama ár.
2019
Bergrún Íris Sævarsdóttir: Kennarinn sem hvarf. Bókin kom út hjá Bókabeitunni sama ár.