Mánasteinar í vasanum
Lesa meira
Drekar, egg og ævintýri á gönguför
Á hverju ári kemur út fjöldi barnabóka þar sem myndir og texti stuðla saman að því að skapa heild bókarinnar og eru slíkar bækur með eindæmum eftirminnilegar, myndir hafa sín eigin áhrif sem síðan spila á skemmtilegan hátt saman við textann. Hver man ekki eftir því að hafa skoðað aftur uppáhaldsbarnabók og uppgötvað að allt önnur saga bjó í minninu, saga sem er sprottin uppúr myndunum eða samspili þeirra við textann.