Bókin er gefin út undir nafninu Emmalyn Bee.
Úr nötri gömlu nútíðarinnar:
Núna þarft þú að fjarlægjast nándleysið! Guð gúglröflsins
gengur um gólf. Um nönfin neistar og úðandi tjattið
magnast. Gól ó-okkar nærist á nánd nútíðarnötursins.
Næringarlaus nánd fésbókarinnar mettar ekki organdi
átgleðina. Lýsandi nöfn útheimsins næra næstum-okkur
ekki nægilega.
Nær væri að talast við á skæpinu. Kuldaleg nútíðin nærir
næstum-okkur betur þannig. Auðvitað! Nöfn okkar verða
þá að hreyfimyndum! Nafnið, nöfnin, geta náttlosað sig og
orðið að talandi mynd.
Uggvaldandi gólið nær gúglnötri nsætum-þín, en úðinn
snertir þig ekki.