Beint í efni

Í landi sársaukans

Í landi sársaukans
Höfundur
Alphonse Daudet
Útgefandi
Dimma
Staður
Reykjavík
Ár
2024
Flokkur
Íslenskar þýðingar

Um bókina

Alphonse Daudet (1840-1897) var einn þekktasti rithöfundur Frakka á ofanverðri nítjándu öld, einkum fyrir smásögur, skáldsögur og leikrit. Nú á tímum eru mörg af verkum hans fallin í gleymsku, en þó ekki hið sígilda Bréf úr myllunni minni sem kom út á íslensku fyrir margt löngu og svo þessi sérstæða bók, Í landi sársaukans, sem birtist fyrst mörgum áratugum eftir lát höfundarins. Um er að ræða einskonar dagbókarskrif þar sem hann lýsir líðan sinni og í raun áralangri baráttu við banvænan sjúkdóm. Þýðing og inngangur eftir Gyrði Elíasson.

Úr bókinni

 

Fleira eftir sama höfund