Beint í efni

Iceland Writers Retreat

Ritlistarbúðirnar Iceland Writers Retreat verða haldnar í sjötta sinn á Íslandi  dagana 3. ‒ 7. apríl 2019. Víðfrægir höfundar frá sjö löndum leiðbeina þar þátttakendum á málstofum um ritlist og bókaskrif og koma þessir þátttakendur hvaðanæva að úr heiminum. Að þessu sinni taka nær 100 manns þátt í búðunum auk leiðbeinendanna. 

Í ár eru þessir rithöfundar meðal leiðbeinenda: Chigozie Obioma, sem hefur verið tilnefnd til Booker-verðlaunanna, Sarah Moss ritlistarprófessor sem hefur samið bók um ársdvöl sína á Íslandi, Paul Yoon sem kennir ritlist við Harvardháskóla í Bandaríkjunum, Ragnar Helgi Ólafsson, tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyrra, og rithöfundurinn og aðgerðasinninn Ivan Coyote. 

Degi áður en ritlistarbúðirnar hefjast, þriðjudaginn 2. apríl, lesa höfundarnir upp úr verkum sínum í Norræna húsinu. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

Upplestri og umræðum stýrir Egill Helgason. Viðburðurinn fer fram á ensku. Þessir höfundar taka þátt í upplestrinum: Ann Hood, Chigozie Obioma, Louis de Bernières, Sarah Moss, Ragnar Helgi Ólafsson, Elizabeth Renzetti, Ivan Coyote, Lina Meruane, Paul Yoon, Priya Basil og Tessa Hadley.