Miðvikudaginn 24. október kl. 20 stendur IBBY á Íslandi fyrir bókakaffi í Súfistanum í Bókaverslun Máls og menningar á Laugavegi. Bókakaffið er á dagskrá Lestrarhátíðar í Reykjavík. Dagskrá: Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur: Geta þau ekki bara lesið almennilegar bækur? Umfjöllun um unglingabókina sem millistig milli barnabóka og annars lesefnis með áherslu á notkunarmöguleika í skólakerfinu. Magnea J. Matthíasdóttir, þýðandi: Satt og logið, sitt er hvað. Hugleiðingar um ástir, íþróttir, vampírur, galdra og annan veruleika sem er matreiddur og borinn á borð í unglingabókum. Gunnar Theodór Eggertsson, rithöfundur og bókmenntafræðingur: Unglingabækurnar sem ég las aldrei. Gunnar veltir fyrir sér af hverju hann hafi engar unglingabækur lesið og hvort bækur úr öðrum bókmenntagreinum geti rúmast innan hugtaksins unglingabók. Steinunn Jónsdóttir, dagskrárgerðarkona og nemandi í 9. bekk segir frá íslenskum unglingabókum sem hún og vinir hennar lesa, bæðin inna og utan skólastofunnar. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.