Í ár eru liðin 110 ár frá fæðingu Halldórs Laxness en Halldór var fæddur þann 23. apríl 1902. Í tilefni afmælisins eru ýmsir atburðir á döfinni, þar á meðal kvikmyndahátíðin Laxness í lifandi myndum í Bíó Paradís, sýningin Bernska skálds í byrjun aldar á Landsbókasafni, gönguferðir og tónleikar Kammerkórs Norðurlands í Hörpu. Hér má sjá dagskrána í heild sinni. Dagskrá afmælishátíðarinnar: 21. apríl 2012 Borgargangan Í fótspor skáldsins. Gönguferðin hefst við Laugaveg 32 kl. 11 og er í samvinnu við Vinafélag Gljúfrasteins. Leiðsögumaður er Pétur Ármannsson arkitekt. 22. apríl 2012 Úr ljóðum Laxness Kammerkór Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar verður í Hörpu með tónleika kl. 20.00. 23. apríl 2012 Bernska skálds í byrjun aldar Formleg opnun á sýningu í Þjóðarbókhlöðunni sem stendur fram í september. 23. – 28. apríl Laxness í lifandi myndum Laxnesskvikmyndavika í samvinnu við Bíó Paradís og RÚV. 29. apríl Verk mánaðarins Símon Jón Jóhannsson fjallar um bókina um Gljúfrastein 1. maí Útgáfutónleikar Tómasar R. Einarssonar kl. 16.00 og 18.00 á Gljúfrasteini. Útgáfutónleikar á diski Tómasar R og félaga sem heitir Laxness. 6. maí Gönguferð í Mosfellsdalnum Ferðafélag Íslands og Vinafélag Gljúfrasteins standa fyrir gönguferð í Mosfellsdal sem hefst kl. 10.
Fæðingarafmæli Halldórs Laxness minnst
