Boðið verður upp á heimsendadagskrá í bókakaffi Iðu á Vesturgötu á stysta degi ársins, föstudaginn 21. desember. Samkvæmt Maya-trú endar heimurinn svona: Þegar Fimmstjarnan skín á hof Jagúarguðsins á stysta degi ársins 2012, munu veggir fjallanna bresta og höfin innvortis í jörðinni flæða yfir byggðir heimsins og drekkja öllum mönnum. Nema þeim sem kyrja og hlusta á skáldskap, því það fólk er guðunum þóknanleg. Klukkan 20:00 föstudaginn 21. desember kynna meðgönguljóð ásamt stellu útgáfu til leiks þrjú ungskáld, Arngunni Árnadóttur, Ástu Fanneyju Sigurðardóttur og Valgerði Þóroddsdóttur. Þær munu halda daginn hátíðlegan ásamt reynslumeiri skáldsystrum sínum, þeim Kristínu Ómarsdóttur og Þórdísi Björnsdóttur. Heimsendadagskráin fer fram í Iðu bókakaffi á Vesturgötu 2A. Bókakaffihús Iðu er í gamla Zimsenhúsinu, á hæðinni fyrir ofan veitingahúsið Fiskifélagið. Kynnir kvöldsins er Kári Tulinius. Dagskráin er sú fyrsta í röð mánaðarlegra upplestra stellu og meðgönguljóða þar sem lítt þekktum skáldum gefst tækifæri til að koma fram með þekktari starfssystkinum sínum. Upplestraröðin er í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO.
Heimsendaupplestur
