Beint í efni

Hvernig verður bók til? Sigríður Víðis ræðir um Ríkisfang: Ekkert

Sigríður Víðis ræðir um tilurð bókar sinnar Ríkisfang: Ekkert í Norræna húsinu fimmtudaginn 27. september kl. 12 - 13. Fyrirlestraröðin Hvernig verður bók til? hefur nú göngu sína, fjórða árið í röð. Þar lýsa rithöfundar tilurð verka sinna og spjalla við áheyrendur um þau. Sigríður Víðis Jónsdóttir ríður á vaðið þetta haustið og fjallar um bókina Ríkisfang: Ekkert, sem fékk viðurkenningu Hagþenkis í vor, auk þess sem hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna. Í bókinni rekur Sigríður sögu einstæðra palestínskra mæðra sem sættu ofsóknum í Íraksstríðinu, hrökluðust úr landi og fengu að lokum pólitískt hæli á Íslandi.   Sigríður ræðir um tilurð bókarinnar, vinnulag sitt og þann farveg sem hún kaus að beina frásögn sinni í. Fyrirlesturinn er á vegum námsbrautar í ritlist í samvinnu við Norræna húsið og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands. Allir eru velkomnir.