Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO stendur fyrir Lestrarhátíð í Reykjavík í annað sinn í október 2013. Markmið Lestrarhátíðar er að hvetja til lesturs, auka umræðu um bókmenntir og tungumál og síðast en ekki síst að vekja athygli á gildi orðlistar í menningaruppeldi og daglegu lífi. Lestrarhátíð verður árviss viðburður í Reykjavík og októbermánuður því mánuður orðlistar og lesturs, með nýju þema hverju sinni.
Hátíðin stendur allan mánuðinn og verður hún að þessu sinni tileinkuð borgarljóðum undir heitinu Ljóð í leiðinni. Lögð verður áhersla á borgina í ljóðum og ljóð í borginni og verða hverfi borgarinnar, nánasta umhverfi okkar og ferðalagið um borgina í brennidepli. Sérstök áhersla er á að allir geti notið ljóðlistar, enda er hún óendanlega fjölbreytt og öll getum við upplifað umhverfi okkar á skapandi, ferskan og óvæntan hátt. Hátíðin er ætluð fólki á öllum aldri.
Arion banki styrkir hátíðina í ár og undirrituðu Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar og Elísabet Grétarsdóttir forstöðumaður markaðsdeildar bankans, samstarfssamning þess efnis í Hörpu í dag, þriðjudaginn 3. september. Samningurinn gerir hátíðinni kleift að vaxa og eflast milli ára. Nú er hægt að bjóða upp á fleiri viðburði fyrir almenning og verður hátíðin því sýnilegri í borgarlandinu svo að sem flestir fái að njóta ljóðsins á leið sinni um borgina. Lestrarvika Arion banka verður ennfremur haldin í október í ár en þá eru krakkar hvattir til að lesa sér til skemmtunar og fróðleiks og skrá lesturinn á vef bankans. „Það er okkur hjá Arion banka sönn ánægja að taka þátt í Lestrarhátíð Reykjavíkurborgar" sagði Elísabet við þetta tækifæri. „Almennt læsi er grunnurinn að sterkara fjármálalæsi hjá þjóðinni og við sem banki viljum gera gagn og styðja slíkt átak. Það er ekki verra að gera það á svo skemmtilegan og skapandi hátt sem Lestrarhátíðin er.“
Ný ljóð um borgina
Forlagið Meðgönguljóð gefur út nýja ljóðabók í samvinnu við Bókmenntaborgina í tilefni hátíðarinnar. Þar skrifar á þriðja tug skálda um borgina en flest ljóðin eru ný. Mörg okkar þekktustu skálda eiga ljóð í bókinni, sem ber sama titil og hátíðin, Ljóð í leiðinni, en einnig eru þar ljóð eftir yngri skáld. Bókin kemur út þann 1. október við setningu Lestrarhátíðar. Við sama tækifæri munu nemendur úr Langholtsskóla frumflytja ljóð og tónverk sem þau vinna með Arnljóti Sigurðssyni textahöfundi og meðlimi í hljómsveitinni Ojba rasta.
Þær Ásta Fanney Sigurðardóttir og Þórdís Björnsdóttir frumfluttu ljóð sín úr bókinni á blaðamannafundinum í dag.
Ljóðið flæðir um borgina
Meðal þess sem boðið verður upp á í október eru ljóð í strætó, en Strætó bs hefur gengið til liðs við Bókmenntaborgina og munu farþegar njóta ljóðskreyttra vagna í mánuðinum. Einnig verða brot úr ljóðum utan á vögnunum og á strætóskýlum. Ljóðskáldið Dagur Hjartarson opnar veggspjaldasýningu í mánuðinum sem verður sett upp víðs vegar um borgina undir heitinu Ljóðið ratar til hinna, en hana prýða borgarljóð eftir fjölda skálda. Einnig verður pólsk-íslenska ljóðaverkefnið ORT hluti af hátíðinni og verða pólsk ljóð í íslenskum þýðingum þar í brennidepli.
Í lok mánaðarins munu Bókmenntaborgin og Félag tónskálda og textahöfunda blása til tónleika í Hörpu í tilefni Lestrarhátíðar og 30 ára afmælis félagsins þar sem orðlistin verður í öndvegi. Einnig halda þessi sömu aðilar málþing sömu helgi þar sem orðlistin verður í forgrunni.
Meðal annarra samstarfsaðila má helst nefna Borgarbókasafn Reykjavíkur og Skóla- og frístundasvið borgarinnar, en skólar taka virkan þátt í hátíðinni í ár líkt og í fyrra.
Dagskráin er opin - allir geta verið með
Lestrarhátíð er grasrótarhátíð og því eru allir sem vettlingi geta valdið hvattir til að bjóða upp á viðburði eða dagskrá sem tengist þemanu í ár. Hvers konar viðburðir sem tengjast ljóðlist og textasmíði eiga erindi í dagskrána.
Áhugasamir geta haft samband við verkefnastjóra Bókmenntaborgarinnar til að koma sínum viðburðum og verkefnum á framfæri í síma 590-1524 eða með tölvupósti: bokmenntaborgin[hjá]reykjavik.is.