Beint í efni

Lestrarstefna fyrir grunnskóla Reykjavíkur

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í gær, miðvikudaginn 17. október, nýja lestrarstefnu fyrir grunnskóla Reykjavíkur. Í henni er kveðið á um að auka vægi lestrar og ritunar í öllu námi og á öllum skólastigum. Í nýrri lestrarstefnu segir m.a. að nemendur skuli fá kennslu og þjálfun í mismunandi lestrarlagi eða lestrartækni, svo sem ítarlestri, nákvæmnislestri, leitarlestri eða skimunarlestri. Einnig að laga skuli kennslu að ólíkri getu nemenda innan hvers nemendahóps. Þá er hvatt til þess að skólar hafi aðgang að kerfisbundnu námsmati sem nái til allra þátta lestrarnámsins og allra aldursstiga svo taka megi réttar ákvarðanir fyrir hvern og einn um áframhaldandi lestrarnám og þjálfun. Einnig er stefnt að því að viðfangsefni barna og unglinga í lestri séu merkingarbær, fjölbreytt og áhugaverð. Skóla- og frístundaráði þótti við hæfi að samþykkja lestrarstefnu fyrir grunnskóla Reykjavíkurborgar nú í október þegar Reykavík Bókmenntaborg UNESCO stendur fyrir Lestrarhátíð í Reykjavík. Sjá lestrarstefnu fyrir grunnskóla Reykjavíkur