Beint í efni

Læsi í leikskólum - Orðið er frjálst

Miðvikudaginn 31. október, á lokadegi Lestrarhátíðar í Reykjavík, verður haldið opið málþing um læsi í leikskólum í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þingið er samstarfsverkefni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur og Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO. Dagskráin stendur frá kl. 13:00 – 16:00. Óttarr Proppé borgarfulltrúi sér um fundarstjórn og boðið verður upp á kaffi og með því. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Dagskrá:

Mótun læsisstefnu leikskóla í bókmenntaborginni Reykjavík Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Kvöldstemning í október Halldóra Guðmundsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Dvergasteins og Drafnarborgar Mikilvægi leikskólans fyrir þróun læsis Dr. Freyja Birgisdóttir, lektor Markviss málrækt í leikskóla fjölmenningar Guðrún Finnsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri frá leikskólanum Ösp Mynd er mál Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur Hvernig geta leikskólarnir nýtt sér Borgarbókasafnið? Þorbjörg Karlsdóttir, verkefnisstjóri barnastarfs á Borgarbókasafni Heiðar og Haraldur Freyr úr hljómsveitinni Pollapönk flytja vögguvísuna Draumaland ásamt leikskólabörnum úr Breiðholti Vögguvísan var samin sérstaklega fyrir leikskóla í Reykjavík og færði Bókmenntaborgin þeim hana að gjöf í tilefni Lestrarhátíðar Punkturinn yfir i-ið Þórarinn Eldjárn rithöfundur