Beint í efni

Saga að gjöf frá IBBY á Íslandi

Smásagan Blöndukútur í Sorpu eftir Þórarin Eldjárn frumflutt fyrir alla grunnskólanema landsins á degi barnabókarinnar

Á degi barnabókarinnar, miðvikudaginn 2. apríl, verður ný íslensk smásaga eftir Þórarin Eldjárn frumflutt í öllum grunnskólum landsins kl. 9.10. Sagan verður samtímis flutt á Rás 1 svo öll þjóðin getur lagt við hlustir. Alþjóðlegum degi barnabókarinnar hefur verið fagnað þann 2. apríl frá árinu 1967, á fæðingardegi H. C. Andersen. Þórarinn Eldjárn skrifaði söguna Blöndukútur í Sorpu fyrir börn á aldrinum 6-16 ára í tilefni dagsins að beiðni IBBY á Íslandi, en þetta er í fjórða sinn sem félagið fagnar deginum með þessum hætti. Þórarinn hlaut á síðasta ári Sögustein, barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi, fyrir hið mikla framlag sitt til barnamenningar, verk bæði í lausu máli og bundnu, þýdd og frumsamin.

Komdu með á hugarflug

Alþjóðlegu IBBY-samtökin hafa trú á sameiningarkrafti barnabókmennta. Með því að færa tugi þúsunda lesenda samtímis inn í heiminn sem Þórarinn skapar í sögunni öðlast heil kynslóð sameiginlega reynslu, og í sameiginlegri reynslu liggur bæði skilningur og umburðarlyndi. Sagan verður lesin fyrir grunnskólabörn á öllum aldri í leikfimisölum og smíðastofum, á sal og í sundlaugum, í frímínútum og í dönskutímum, allt eftir því hvernig hver skóli kýs að fella upplesturinn að stundaskrám nemendanna. Sleipnir, hinn áttfætti lestrarfélagi barna á öllum aldri, hvetur unga sem aldna til að leggja við hlustir að morgni alþjóðlegs dags barnabókarinnar og hverfa inn í söguheim skáldsins.