Sögur – verðlaunahátíð barnanna fór fram í þriðja sinn laugardaginn 6. júní síðastliðinn. Á hátíðinni, sem var sýnd í beinni útsendingu á RÚV, voru börn á aldrinum 6 - 12 ára verðlaunuð fyrir sköpunarverk sín og krakkar verðlaunuðu það sem þeim fannst bera af í barnamenningu á liðnu ári.
Þá voru heiðursverðlaun Sagna veitt og að þessu sinni hlutu Sigrún og Þórarinn Eldjárn þau fyrir framlag sitt til barnamenningar. Saman hafa þau skapað fjölda bóka fyrir krakka og fólk á öllum aldri sem eru ýmist eftir Þórarin með myndskreytingum Sigrúnar eða eftir Sigrúnu með ljóðskreytingum Þórarins eins og þau lýstu sjálf á verðlaunaathöfninni. Barnaljóð Þórarins og myndir og skáldverk Sigrúnar fyrir börn eru þegar orðin sígild verk í íslenskum barnabókmenntum.
Sköpun barna
Alls hlutu 43 börn viðurkenningu fyrir tuttugu smásögur, sex handrit að stuttmyndum, tvö handrit að leikritum og þrjú tónverk (lög og texta). Verk þessara ungu höfunda birtast í bókinni Risastórar smásögur, sem stuttmyndir á KrakkaRÚV og leikrit á fjölum Borgarleikhússins. Lögin þrjú sem hlutu viðurkenningu voru frumflutt á verðlaunahátíðinni í flutningi Króla, Sölku Sólar og Valdimars.
Sögur er samstarfsverkefni sem snýst um að ýta undir sköpun barna, koma henni á framfæri og veita börnum vettvang til að kjósa sitt uppáhalds menningarefni. Börn geta sent inn handrit að smásögum, stuttmyndum og leikritum allt árið um kring á vef KrakkaRÚV og nú einnig tónverk (lag og texta).
Aðstandendur Sagna eru KrakkaRÚV, Borgarbókasafn Reykjavíkur, List fyrir alla, Menntamálastofnun, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.
Verðlaunahafar Sagna 2020
Smásaga ársins
Yngri flokkur: Högni Freyr Harðarson: Drekaspor
Eldri flokkur: Þorkel Kristin Þórðarson: Ég og díselvandinn
Aðrir höfundar sem eiga sögur í Risastórum smásögum:
Ásgeir Atli Rúnarsson: Ævintýri Mæju og Tomma
Bríet Bergdís Stefánsdóttir: Ævintýra-Saga
Elísabet Freyja Lorenz: Nammigrís
Erna Tómasdóttir: Hver er ég?
Esja Mae Fulton Aðalsteinsdóttir: Húsamúsin sem næstum því skemmdi heiminn
Eyrún Stína Skagalín Guðmundsdóttir: Níu nætur
Felix Hugo Calmon Tegelblom og Kristján Þórarinsson: Draugalegt drepó!
Gísli Marinó Sváfnisson: Skugga svæðið
Guðrún Eva Ágústsdóttir: Ugla, Kría og slímbyssan
Hekla Rán Óskarsdóttir: Leitin að svarta úlfinum
Ingibjörg Elka Þrastardóttir: Enn ein ofurhetjusaga…
Kolfinna Stefánsdóttir: Jólasveinar fara í sumarfrí
Salka Björt Björnsdóttir og Ylfa Katrín Gústavsdóttir: Hengimaðurinn
Sara Margrét Þorsteinsdóttir: Ísbjörninn og blómið
Sigurlaug Sturludóttir og Emma Hrólfdís Hrólfsdóttir: Nýir vinir
Sóldís Ilmur Stefánsdóttir: Ævisaga Viðars trés
Valgerður Ása Eyjólfsdóttir: Ævintýri kanínubarnsins
Þorsteinn Jakob Jónsson: Múmíuvinir
Risastórar smásögur er rafbók sem nálgast má ókeypis á vef Menntamálastofnunar. Ritstjóri er Hjalti Halldórsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir myndlýsti sögurnar fyrir utan sögur þeirra Högna Freys Harðarsonar og Gísla Marinós Sváfnissonar sem þeir myndlýstu sjálfir. Hjalti hitti höfundana ungu á fjarfundum til að fara yfir sögur þeirra fyrir birtingu þar sem aflýsa þurfti fyrirhuguðum meistarabúðum vegna Covid-19.
Í dómnefnd voru Gunnar Helgason f.h. félags barnabókahöfunda - SÍUNG, Kristín Viðarsdóttir f.h. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO og Rut Ragnarsdóttir f.h. Borgarbókasafns.
Handrit ársins - Stuttmyndir
Guðrún Anna Jónsdóttir: Kötturinn sem talaði
Emma Ósk Jónsdóttir: Ævintýri í Egyptalandi
Sveinbjörg Lára Kristjánsdóttir, Ardís Unnur Kristjánsdóttir og Halla Björg Ingvarsdóttir: Ritsmiðjan
Dagnýj Bára Stefánsdóttir: Töfrapúslið
Ester Mía Árnadóttir: Tinna 368
Urður Eir Baldursdóttir:Telma og Konráð
Sjá má stuttmyndirnar á vef KrakkaRÚV en handritin voru valin til áframhaldandi vinnslu af fagfólki á RÚV og unnin þar í samstarfi við höfundana.
Tónlist ársins
Ljósbjörg Helga Daníelsdóttir: Stúlka upp á stól
Karolina Tarasiewicz, Ásgerður Júlíusdóttir, Birgitta Rúnarsdóttir og Gabríela Uscio: Pabbi minn er prestur
Andrés Illugi Gunnarsson: Kliður í fjöllunum
Öll lögin þrjú voru frumflutt á verðlaunahátíð Sagna af þeim Sölku Sól (Stúlka upp á stól), Króla (Pabbi minn er prestur) og Valdimar (Kliður í fjöllunum). Tónlistarmaðurinn Ingvar Alfreðsson vann lögin áfram með höfundunum fyrir flutninginn.
Handrit ársins - Leikrit
Yngri flokkur: Eyþór Val Friðlaugsson: Skrímslalíf
Eldri flokkur: Júlía Dís Gylfadóttir, Kristbjörg Katla Hinriksdóttir og Þóreyj Hreinsdóttir: Tímaflakkið mikla
Leikritin verða unnin áfram með höfundunum undir handleiðslu fagfólks í Borgarleikhúsinu og frumflutt þar.
Börnin verðlauna
Einn hluti af verkefninu Sögur er að börn á aldrinum 6 – 12 ára geta kosið um sitt uppáhalds menningarefni á kosningavef Sagna. Niðurstaða kosninganna í ár var eftirfarandi.
Bókaverðlaun barnanna
Bækur frumsamdar á íslensku: Orri óstöðvandi eftir Bjarna Fritzson
Þýddar bækur: Dagbók Kidda klaufa – Allt á hvolfi eftir Jeff Koney í þýðingu Helga Jónssonar
Lag ársins
Think about Things – Daði og gagnamagnið
Flytjandi ársins
Daði og gagnamagnið
Texti ársins
Ferðumst innanhúss – Leifur Geir Hafsteinsson
Barna og unglingaþáttur í sjónvarpi
Krakkafréttir – RÚV
Fjölskylduþáttur í sjónvarpi
Allir geta dansað – Stöð 2
Sjónvarpsstjarna ársins
Steindi Jr.
Leiksýning ársins
Mamma klikk – Gaflaraleikhúsið
Leikkona/leikari ársins
Auðunn Sölvi Hugason – Mamma klikk