Beint í efni

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2013

Tilkynnt hefur verið hvaða ritverk eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2013. Sem fyrr er tilnefnt í flokkum fagurbókmennta og fræðibóka, en í ár er í fyrsta sinn tilnefnt í flokki barna- og unglingabókmennta. Þetta er 25. árið sem tilnefnt er til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Í flokki barna og unglingabóka eru tilnefndar: Tímakistan eftir Andra Snæ Magnason, Brosbókin eftir Jónu Valborgu Árnadóttur og Elsu Nielsen, Freyju saga eftir Sif Sigmarsdóttur, Strokubörnin á Skuggaskeri eftir Sigrúnu Eldjárn Vísindabók Villa eftir Vilhelm Anton Jónsson. Í flokki fagurbókmennta eru tilnefndar: 1983 eftir Eirík Guðmundsson, Sæmd eftir Guðmund Andra Thorsson, Fiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman Stefánsson, Mánasteinn eftir Sjón Dísusaga-Konan með gulu töskuna eftir Vigdísi Grímsdóttur. Í flokki fræðibóka og rita almenns efnis eru tilnefndar: Leiftur á horfinni öld - Hvað er merkilegt við íslenskar fornbókmenntir? eftir Gísla Sigurðsson, Íslenska teiknibókin eftir Guðbjörgu Kristjánsdóttur, Vatnið í náttúru Íslands eftir Guðmund Pál Ólafsson, Fjallabókin eftir Jón Gauta Jónsson, Stangveiðar á Íslandi og Íslensk Vatnabók eftir Sölva Björn Sigurðsson Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna í hverjum flokki. Dómnefnd í flokki barna- og unglingabókmennta skipuðu Guðni Kolbeinsson, formaður dómnefndar, Helga Ferdinandsdóttir og Þorbjörg Karlsdóttir. Dómnefnd fagurbókmennta var skipuð þeim Þorgerði Elínu Sigurðardóttur, formanni dómnefndar, Ernu Guðrúnu Árnadóttur og Tyrfingi Tyrfingssyni. Í dómnefnd fræðibóka og rita almenns efnis sátu Þóra Arnórsdóttir, formaður dómnefndar, Hildigunnur Sverrisdóttir og Pétur Þorsteinn Óskarsson. Íslensku bókmenntaverðlaunin 2012 hlutu Eiríkur Örn Norðdahl fyrir skáldsöguna Illsku og Gunnar F. Guðmundsson fyrir ævisöguna Pater Jón Sveinsson - Nonni. Íslensku bókmenntaverðlaunin 2013 verða afhent um mánaðarmótin janúar-febrúar af Forseta Íslands á Bessastöðum. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna í hverjum flokki.

Tilnefningar til þýðendaverðlaunanna 2013

Dómnefnd á vegum Bandalags þýðenda og túlka kynntu einnig þær fimm þýðingar sem tilnefndar eru til Íslensku þýðingaverðlaunanna. Þær eru: Rannsóknir Heródótusar í þýðingu Stefáns Steinssonar, Ó - Sögur um djöfulsskap eftir Carl Jóhan Jensen í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur, Ljóð 1954-2004 eftir Tomas Tranströmer í þýðingu Njarðar P. Njarðvíkur, Sem ég lá fyrir dauðanum eftir William Faulkner í þýðingu Rúnars Helga Vignissonar Rödd í dvala - La voz dormida eftir Dulce Chacón í þýðingu Maríu Ránar Guðjónsdóttur. Forseti Íslands veitir verðlaunin á Gljúfrasteini á degi bókarinnar, 23. apríl.