Beint í efni
kl.
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Glæpafár á Íslandi | Bókmenntaganga - Bræður, systur og glæpir

Katrín Jakobsdóttir er nú þekktust fyrir önnur störf sín en upphaflega var hún sérfræðingur í sögu og þróun glæpasögunnar, m.a. elstu glæpasögunum sem áttu sér stað á Hótel Borg og Klapparstígnum en einnig sögum Arnaldar Indriðasonar sem komu Norðurmýrinni og Grafarholti rækilega inn í íslenska bókmenntasögu. Ármann Jakobsson er bróðir hennar og hefur sent frá sér einar sex sögur um glæp, m.a. eina sem er staðsett nálægt Háskólanum og aðra sem gerist einkum á Freydísargötu sem nú er einmitt að verða til á höfuðborgarsvæðinu. Hversu mikilvægt er borgarlandslagið fyrir sakamálasöguna og hvernig mótast sögur af staðarvalinu? Gangan hefst við Borgarbókasafnið Grófinni, við Tryggvagötu 15. Öll hjartanlega velkomin. Bókmenntagangan er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi í tilefni af 25 ára afmæli Hins íslenska glæpafélags. Sjá dagskrá Borgarbókasafnsins hér: https://borgarbokasafn.is/glaepafar-islandi Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.