Beint í efni
kl.
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41, 112 Reykjavík

Glæpafár á Íslandi | Skúli Sigurðsson situr fyrir svörum

Hefur þú áhuga á glæpaskrifum? Borgarbókasafnið efnir til ritsmiðju í glæpasagnaskrifum í tilefni af dagskránni Glæpafár á Íslandi. Hinn rómaði og margverðlaunaði höfundur, Skúli Sigurðsson, kíkir í heimsókn í lok smiðjunnar, spjallar um eigin skrif og situr fyrir svörum jafnt nemenda sem annarra áhugasamra gesta. Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi stýrir umræðum. Viðburðurinn er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi sem haldin er í samstarfi við Hið íslenska glæpafélag, sem fagnar 25 ára afmæli í ár. Öll velkomin og aðgangur er ókeypis. Sjá yfirlit yfir viðburði Borgarbókasafnsins sem heyra undir Glæpafár á Íslandi. https://borgarbokasafn.is/glaepafar-islandi Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.