Beint í efni
kl.
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Glæpafár á Íslandi | Glæpakviss í Grófinni

Æsispennandi spurningakeppni í boði Hins íslenska glæpafélags. Valgeir Gestsson verður í hlutverki glæpakviss-stjóra. Í tilefni af 25 ára afmæli Hins íslenska glæpafélags bjóðum við öllum lesendum glæpasagna að taka þátt í svokölluðu glæpakvissi, æsispennandi spurningakeppni sem samin er af hinum alræmda Ævari Erni Jósepssyni, formanni félagsins. Keppnin verður haldin á mörgum almenningsbókasöfnum samtímis, í aðdraganda Bókasafnsdagsins sem alltaf er fagnað í september en alþjóðlegur dagur læsis er 8. september. Það er því um að gera að nota tímann vel og glugga í gamlar jafnt sem nýjar glæpasögur til að rifja upp hin ýmsu plott og hrollvekjandi atburði sem íslenskir höfundar hafa sett saman í bókum sínum, okkur lesendum til ánægju og yndisauka. Sá sem ber sigur úr býtum fær að sjálfsögðu verðlaun og við lofum rafmagnaðri stemningu og ljúfum veitingum til að róa taugarnar á meðan á keppni stendur! Sjá yfirlit yfir alla viðburði Borgarbókasafnsins sem tilheyra viðburðaröðinni Glæpafár á Íslandi. Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.