Þegar athafnamaðurinn Flosi kemur heim í kvöldmat er allt á rúi og stúi en Guðrún kona hans horfin. Á eldhúsborðinu bíður bréf um að henni hafi verið rænt og ef Flosi greiði ekki himinhátt lausnargjald verði hún drepin. Hann má ekki leita til lögreglunnar en eftir krókaleiðum kemst hann í samband við Áróru, sem vinnur við að finna falið fé, og Daníel rannsóknarlögreglumann. Án þess að nokkuð spyrjist út reyna þau í sameiningu að átta sig á hvað hefur gerst. Getur verið að ránið á Guðrúnu tengist alþjóðlegri glæpastarfsemi og peningaþvætti – eða er skýringin ef til vill mun nærtækari?
Blóðrauður sjór er sjálfstætt framhald sögunnar Helköld sól þar sem Áróra og Daníel voru líka í aðalhlutverki.