Frelsun Heimsins er safn sextán greina og fyrirlestra eftir Kristínu Marju Baldursdóttur – lífleg, beitt og skemmtileg skrif þar sem hún fjallar meðal annars um sköpun, tungumál, þjóðlíf og konur fyrr og nú.
Greinarnar eru frá ólíkum tímum og tilefnin margvísleg en rauður þráður gegnum þær allar er þörfin fyrir að kryfja mál til mergjar og skoða hlutina upp á nýtt – velta við steinum í leit að betra mannlífi.