Af bókarkápu:
Hjálp, Keikó! Hjálp!, segir frá Matthildi og Gylfa og þeim óvæntu ævintýrum sem þau lenda í þegar hvolpurinn Lubbi týnist í hrauninu í Vestmannaeyjum. Þau stelast til að ýta kajak á flot og róa síðan í áttina að Klettsvíkinni til að tala við Keikó. Þegar Gylfi missir árina fyrir borð tekur för þeirra háskalega stefnu.
Þórarinn F. Gylfason myndskreytti.