Um bókina
Til þeirra sem málið varðar er ástríðufullt ávarp til samtíðarinnar þar sem bjartir tónar og dimmir kallast á og ljóðstefin eru jöfnum höndum heilabrot um upphaf og endalok, efa og óvissu, sjálfa eilífðina – og vangaveltur um undur hversdagsins; ástina, náttúruna og daglegt streð mannanna.
Einar Már Guðmundsson er skáld sem lætur sér annt um veröldina, og á hér erindi við þá sem málið varðar – okkur öll.
Úr bókinni
I
Taktu himininn
og hengdu hann út í glugga.
Ef guð fylgir með ertu heppinn
en alls ekki óheppinn
ef hann fór eitthvað annað.
Þá kemur hann bara seinna.
Ég reyni að toga orðin út úr auðninni,
rigningunni og þokunni,
en úti er hvert hitamet slegið.
Um hvað er verið að metast?
Mér skilst að þetta snúist allt um ljós.
Það var hér í upphafi og er hér enn.
En bráðum fer að dimma.
Þá birtir yfir okkur.
Í upphafi var orðið
en hvað var á undan orðinu,
annað orð, önnur veröld,
fábrotin eins og regnið á götunum,
einsog sú sem er núna,
sú sem fer bráðum,
sú sem kemur og sú sem fer.