Olía
Lesa meiraTanntaka
Lesa meira
Tanntaka
Tanntaka er ljóðabók sem er í senn súr og sæt, beisk og blóðug. Tónninn í bókinni er nýstárlegur og ferskur, ljóðin hafa fallegan hrynjanda og tungumálið er lipurt og leikandi. Myndmál ljóðanna er sterkt og þau flæða fram af miklum krafti en vert er að staldra við og lesa í annað eða þriðja sinn því við hvern lestur má uppgötva eitthvað nýtt.
Olía
Í Olíu er skyggnst inn í líf og hugarheim sex kvenna, sem takast hver á sinn hátt á við tilveruna og reyna meðvitað og ómeðvitað að veita hlutverkum sem samfélagið setur þær í viðnám. Sagan kemur út á hárréttum tíma og er gott innlegg í umræðu undanfarinna vikna og mánaða, þar sem konur hafa verið að kveða sér hljóðs og krefjast þess að á þær sé hlustað af alvöru.