Barnaleikrit eftir Áslaugu sem hún byggir á samnefndri bók sinni frá 2005. Verkið er frumsýnt í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu í september 2007 í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Tónlist og hljóðmynd eftir Sigurð Bjólu og söngtextar eftir Áslaugu.
Um verkið:
Þegar pabbi skreppur frá til að sækja mömmu er strákur aleinn heima með bangsa sér til halds og trausts. En það er hægara sagt en gert að hughreysta bangsa sem óttast óboðna gesti eins og Hrekkjusvínið, Hræðslupúkann, Tímaþjófinn, Frekjuhundinn og ótal fleiri furðuskepnur.