Beint í efni

Völusteinn

Völusteinn
Höfundur
Ragnheiður Gestsdóttir
Útgefandi
Námsgagnastofnun
Staður
Reykjavík
Ár
2007
Flokkur
Ritstjórn / Umsjón útgáfu

Bók til að lesa saman og spjalla um. Ragnheiður Gestsdóttir tók saman. Með myndum eftir Önnu Cynthiu Leplar.

Um bókina:

Völusteinn er sjálfstætt framhald á bókunum Sögusteinn og Ósksteinn sem hafa átt vinsældum að fagna meðal nemenda og kennara. Bókin skiptist í þrjá aðalkafla sem hver um sig inniheldur fjölbreytt efni.

Á framandi slóðum: Hvað eiga Róbinson Krúsó, Vesturfararnir á 19. öldinni og íslenskir útilegumenn sameiginlegt? Allir þurftu þeir að takast á við nýjar og framandi aðstæður. Það er forvitnilegt að setja sig í spor þeirra og ef til vill getum við lært eitthvað af þeim.

Í dulargervi: Það getur verið skemmtilegt að þykjast vera einhver annar en maður er. Stundum er meira að segja nauðsynlegt að bregða sér í dulagervi.

Tíminn líður: Væri ekki gaman að eiga tímavél og geta ferðast bæði fram og aftur í tíma? Slík ferðalög eru þó kannski ekki alveg hættulaus eins og Teitur tímaflakkari veit. Kannski er líka hægt að ferðast um tímann án þess að nota tímavél.

Fleira eftir sama höfund

Fortellerstein

Lesa meira

Ef væri ég söngvari

Lesa meira

Leikur í talvi

Lesa meira

Ekki lengur Lilli

Lesa meira

Valdi og Vaskur

Lesa meira

Leikur á borði

Lesa meira

Gegnum glervegginn

Lesa meira

Myndin í speglinum

Lesa meira

Sværdbæreren (hljóðbók)

Lesa meira