Bók til að lesa saman og spjalla um. Sjálfstætt framhald af bókinni Sögusteinn og síðar kom út Völusteinn. Ragnheiður Gestsdóttir tók efnið saman. Með myndum eftir Önnu Cynthiu Leplar.
Um Óskastein:
Bókin skiptist í þrjá aðalkafla sem hver um sig inniheldur fjölbreytt efni, sögur, fræðsluefni, samtalsþætti og vísur. Kaflarnir heita:
Margt býr í myrkrinu. Í kaflanum eru gamlar og nýjar draugasögur en einnig er þar fjallað um ljósið og myrkrið. Táknmynd kaflans er að sjálfsögðu draugur.
Gettu betur. Táknmynd þessa kafla er vasaljósið sem getur lýst okkur leið inn í króka og kima. Í kaflanum er fjallað um ráðgátur og þrautir af ýmsu tagi.
Ef ég gæti óskað mér. Hvers myndir þú óska þér ef þú ættir eina ósk? Hugsaðu þig vel um því óskir eru dýrmætar. Táknmynd kaflans er töfralampinn sem hjálpaði Aladdín að uppfylla sínar óskir.