Beint í efni

Pólstjarnan fylgir okkur heim

Pólstjarnan fylgir okkur heim
Höfundur
Margrét Lóa Jónsdóttir
Útgefandi
Salka
Staður
Reykjavík
Ár
2024
Flokkur
Ljóð

Um bókina

Margrét Lóa hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2024 fyrir bókina.

Umsögn dómnefndar í heild sinni:

Ljóðmælandi situr á útikaffihúsi og hugsar um lífið og tilveruna. Minningar leita á hana; minningar um látna ástvini, ljúfsár augnablik úr æsku og ferðalög á fjarlægar slóðir. Úr þessum minningum verður til ljóðrænt vitundarstreymi sem er í senn kjarnyrt og margrætt.

Pólstjarnan fylgir okkur heim er vandað og vel uppbyggt handrit með skýrum boga. Um er að ræða samfellda frásögn sem skiptist í mörg stutt, ónefnd ljóð sem saman mynda samhljóm er minnir á sinfóníu eða óhlutbundið kvikmyndaverk. Ljóðmálið er tært og grípandi og í gegnum handritið má finna magnaðar ljóðmyndir sem sitja lengi í huga lesanda að lestri loknum.

Höfundur fetar fimlega einstigið á milli hins pólitíska og persónulega, án þess þó að vera prédikandi og þrátt fyrir að hér sé ort um flóttafólk, stríð og dauða þá liggur í gegnum handritið þráður vonar sem er ekki bara viðeigandi fyrir þá tíma sem við lifum, heldur ef til vill nauðsynlegur. Táknmynd handritsins er Pólstjarnan, leiðarstjarnan sem í aldanna rás hefur vísað mannkyninu veginn um ókunn höf og lönd.

Á sama hátt og Pólstjarnan vísaði sæförum veginn á öldum áður, vísar hún lesendum veginn í gegnum handrit sem við fyrstu sýn virðist ólínulegt en er þó jafn víðáttumikið og kunnuglegt og stjörnuhiminninn.

Pólstjarnan fylgir okkur heim er magnaður ljóðaseiður um lífið, dauðann, tímann innra með okkur og veraldarundrið vonina.

Úr bókinni


vindurinn flettir
minnisbók

dúfur narta
í brauðmylsnu

ég hugsa um svartamyrkur og brim
og sólskinið heima sem við fáum
aldrei nóg af


mamma mín hringir í mig í draumi
tveimur dögum eftir andlátið

- þegar þú deyrð þá bæði sérðu
og heyrir allt sem gerist
segir hún

mér verður ekki um sel
því í draumnum veit ég
- að hún er farin


íklæðist skuggum
á sólríkum degi
hoppa milli þúfna
renn saman við sandöldur
með tígrismynstri

- af einsemd minni
er hunangsbragð

 

Fleira eftir sama höfund

Tilvistarheppni

Lesa meira

Ljóð í Cold was that Beauty...

Lesa meira

Glerúlfar

Lesa meira

Laufskálafuglinn

Lesa meira

Tímasetningar

Lesa meira

Ljóðaást

Lesa meira

Frostið ínni í hauskúpunni

Lesa meira

Biðröðin framundan

Lesa meira

Orðafar

Lesa meira