Um bókina
Sigurverkið er söguleg skáldsaga sem gerist á sunnanverðum Vestfjörðum og í Kaupmannahöfn á 18. öld og lýsir örlögum alþýðufólks og valdinu sem það er undirselt.
Íslenskur úrsmiður situr í höll Danakonungs og gerir upp forna glæsiklukku. Kvöld eitt rekst sjálfur einvaldurinn, Kristján sjöundi, inn til hans; að nafninu til enn höfuð ríkisins en þykir ekki með öllum mjalla og hefur verið ýtt til hliðar af syni sínum og hirð. Þeir taka tal saman og svo fer að úrsmiðurinn rekur fyrir hátigninni dapurlega sögu föður síns og fóstru sem tekin voru af lífi að skipan fyrri konungs, föður Kristjáns.
Arnaldur Indriðason hefur verið vinsælasti höfundur landsins í áratugi. Sigurverkið er tuttugasta og fimmta skáldsaga hans og hér fetar hann nýja slóð, því bókin er að hluta byggð á raunverulegum atburðum og persónum.