Frumflutt í Útvarpsleikhúsinu þann 4. janúar árið 2014. Leikstjóri: Kristín Jóhannesdóttir.
Verkið var unnið í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík.
Um verkið:
Þjónninn er leikskáld sem er að skrifa útvarpsleikrit. Hann skapar Blindu konuna en missir smám saman tökin á sköpunarverki sínu. Hún öðlast sjálfstæðan vilja, hið skapaða tekur völdin af skaparanum, listaverkið af listamanninum.
Utan við verk Þjónsins er stærri rammi. Þar leynist Höfundurinn sem bjó til Þjóninn og stjórnar hljóðheimi verksins, þ.e.a.s. útvarpsleikritinu sem Þjónninn er að skrifa.
Utan við þetta er enn stærri rammi, Guð almáttugur, skapari himins og jarðar. Hvíslandi rödd stúlkubarns fléttast inn á milli hinna sköpunarverkanna. Hvíslar að okkur smábútum úr I. Mósebók, sköpunarsögunni...