um bókina
Í þessari einstöku bók um eina elstu og vinsælustu íþróttagrein veraldar stígur hver hnefaleikameistarinn af öðrum fram á sviðið á líflegan hátt. Nægir þar að nefna: Joe Louis, Rocky Marciano, Muhammad Ali, George Foreman, Larry Holmes, Mike Tyson, Evander Holyfield, Lennox Lewis, Ike Quartey, Roy Jones, Julio Cesar Chavez, Oscar de la Hoya og sjálfan Prinsinn - Naseem Hamed.
Höfundar bókarinnar, Bubbi Morthens og Sverrir Agnarsson, hafa fylgst með hnefaleikum frá blautu barnsbeini. Hér draga þeir upp meitlaða mynd af helstu meisturum boxins og baráttunni utan hrings sem innan.