Evana Kisa myndlýsti. Bókin er prentuð með letrinu Dyslexie sem auðveldar lesblindum að lesa.
um bókina
Þín eigin saga: Risaeðlur fjallar um svangar snareðlur, forvitnar flugeðlur, glaðan grameðluunga – og ÞIG.
ÞVÍ ÞÚ RÆÐUR HVAÐ GERIST!
Mundu bara að ef sagan endar illa má alltaf reyna aftur – það eru mörg mismunandi sögulok!
úr bókinni
Þú hugsar málið.
"Nei," ákveður þú svo. "Þú átt heima í þessum tíma."
Þú leggur ungann frá þér og læðist út úr rjóðrinu.
Skyndilega byrjar jörðin að titra.
Þú felur þig á bak við tré.
Gríðarstór grameðlumamma þramma inn í rjóðrið. Litli unginn hleypur til hennar. Mamman er glöð að sjá hann.
Þú brosir. Eins gott að þú tókst ekki ungann.
Maður á aldrei að taka börn frá foreldrum sínum.
Þú lætur grameðlurnar í friði og gengur aftur inn í skóginn.
Þig langar heim.
Þér líst ekkert á þennan tíma.
Þú leggur við hlustir þar til þú heyrir suðið í svartholinu.
Þú hleypur af stað í áttina að hljóðinu.
"Þarna ertu!" hrópar þú þegar þú sérð svartholið.
Þú stekku rinn í það og sogast aftur heim.
ENDIR.
(s. 35-37)