Bio
Gunnar Theodór Eggertsson was born in Reykjavík on January 9 1982. He is a writer, scholar and a musician.
He has a BA-degree in Comparative Literature from the University of Iceland (2005), a MA-degree in Film Studies from the University of Amsterdam (2006) and finally a PhD degree in Comparative Literature from the University of Iceland (2016).
Gunnar writes novels for children, teens and adults.
Gunnar has written various articles and essays for literary journals and radio and has been a part time lecturer at the University of Iceland. In addition he has given numerous papers at conferences and Universities, both in Iceland and abroad. He specialises in animals and animal welfare.
His short story „Vetrarsaga“ (“A Winter Tale”) received the Icelandic Criminal Society Award (Gaddakylfan) in 2005.
In 2008 he received The Icelandic Children’s Literature Award for debut novel Steindýrin (The Stone Animals).
He is a pianist and composer for neo-classical chamber punk trio Malneirophrenia.
More about Gunnar on his website gunnaregg.com
Awards
2008 - The Icelandic Children’s Literature Award for debut novel The Stone Animals
2005 - The Icelandic Criminal Society Award – Gaddakylfan – for horror short story “Vetrarsaga” (“A Winter Tale”)
Furðufjall : Stjörnuljós (Mystic Mountain III: Starlight)
Read moreÁlfastúlkan Íma situr fangin ofan í gömlum hallarrústum þegar hvítur köttur birtist skyndilega og leiðir hana djúpt inn í iður fjallsins. Andreasi er rænt af álfunum en verra er þó að erkióvinur hans, prinsinn, hefur fundið Hulinseyju og hyggur á hefndir. Framtíð eyjunnar er því í höndum Ímu og Andreasar, sem þurfa að ljúka upp leyndardómum fjallsins og sameina íbúana gegn óvinunum.Furðufjall : Næturfrost (Mystic Mountain II: Night Frost)
Read moreNæturfrost er önnur bókin í ríkulega myndskreyttri ævintýraseríu fyrir börn og unglinga. Þetta bindi hefst á því að Andreas og föruneyti hans hafa numið land á Hulinseyju. Álfarnir taka vel á móti þeim þótt þeir haldi þó ákveðinni fjarlægð. Íma glímir við nornanámið og kemst á snoðir um hræðilegt leyndarmál sem falið er í fjallinu. En skuggahliðar eyjunnar koma þó fyrst í ljós þegar nóttin skellur á.Furðufjall : Nornaseiður (Mystic Mountain I: Witches' Brew)
Read moreNornaseiður er fyrsta bókin í splunkunýrriævintýraseríu fyrir börn og unglinga. Sagan er ríkulega myndskreytt.. . Íma er ósátt við lífið. Öll leiðinlegustu skyldustörfin á eyjunni lenda á henni á meðan systir hennar fær að nema galdur hjá nornunum! Andreas lærir járnsmíðar af pabba sínum á meginlandinu en dreymir um að verða riddari og vinna hetjudáðir. En örlögin hafa ætlað þeim báðum annað og brátt verða óvæntir og skelfilegir atburðir sem setja tilveru þeirra gjörsamlega í uppnám.. .Drauma-Dísa (Dream-Disa)
Read moreDrauma-Dísa er þriðja bók Gunnars Theodórs Eggertssonar um stelpuna sem eitt sinn var venjulegur unglingur í Reykjavík, gufaði svo upp eftir ævintýralegan bardaga í fjarlægu landi en lifir í gegnum bækur Björns, vinar síns úr fortíðinni.Sláturtíð (Slaughter Season)
Read moreKvikmyndagerðarmaðurinn Ásbjörn Axel tekur að sér að hafa uppi á íslenskri baráttukonu fyrir réttindum dýra sem ekkert hefur spurst til síðan hún sat í fangelsi í Hollandi fyrir skemmdarverk. Leitin leiðir hann á vafasamar slóðir í litríkum félagsskap dýraréttindasinna í Evrópu og smám saman missir hann tökin bæði á verkefninu og sjálfum sér.. .Drauga-Dísa (Dead-Disa)
Read moreÞegar allt fer í háaloft á milli Dísu og vinsældaklíkunnar í níunda bekk flýr hún upp í sveit með foreldrum sínum. Þrjú hundruð árum fyrr situr strákur í sama dal og bíður þess að ófreskja skríði úr eggi. Hvorugt þeirra veit að brátt munu þau hittast og setja af stað atburðarás sem slær við öllum skrímslasögum sem heimurinn hefur þekkt til þessa.. .Steinskrípin: hryllingsævintýri (The Stone Creatures)
Read moreDaginn sem Bergur vaknar skyndilega til lífsins skín gamalkunnug sólin hátt á lofti en annað er framandi. Veröldin er grá og líflaus og þar ráða steinskrípin ríkjum – hrikalegar ófreskjur með slímuga arma og flugbeittar klær. Bergur er þó ekki einn í heiminum.. .Steindýrin (The Stone Animals)
Read moreHvernig getur hundur breyst í styttu? Það er eitthvað meira en lítið dularfullt. En þannig byrjar þessi saga. Hringur, hundurinn hans Úlfs gamla, breyttist í styttu og um leið lét allt fullorðna fólkið í þorpinu okkar eins og hann hefði aldrei verið til. . .