um bókina
Eru foreldrar þínir sítuðandi um „þessa nútímaunglinga“? Og er amma þín alltaf eitthvað að þvaðra um að allt hafi verið betra í gamla daga?
Þá er þetta bókin fyrir þig.
Þau hafa nefninlega kolrangt fyrir sér. Sjúklega súr saga leiðir þig í allan sannleika um af hverju og fær þér í hendur öll þau svör sem þú þarft til að gera þau kirfilega kjaftstopp.
Hér má lesa allt um:
MYGLAÐAR MIÐALDIR
STURLAÐA STURLUNGA
ÓÐA ÚTRÁSARVÍKINGA
ÓHLÝÐNA BISKUPA
BLINDFULLA EMBÆTTISMENN
ROPANDI YNGISMEYJAR
TÍMAFLAKKANDI SAGNFRÆÐINGA
DREPSÓTTIR, HÝÐINGAR OG HRUN
… og ýmislegt fleira súrara en góðu hófi gegnir.
Gættu þess bara að fela bókina vandlega að lestri loknum til þess að foreldrar þínir komist ekki með klærnar í hana. Þau eru nefninlega vís með að vilja skemmta sér yfir henni líka.