Beint í efni

Jarðljós

Jarðljós
Höfundur
Gerður Kristný
Útgefandi
Mál og menning
Staður
Reykjavík
Ár
2024
Flokkur
Ljóð

Um bókina

Gerður Kristný hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir skrif sín og við ljóð hennar hafa innlendir og erlendir listamenn samið tón- og leikverk. Jarðljós er tíunda ljóðabók hennar en sú fyrsta, Ísfrétt, kom út fyrir réttum þrjátíu árum.

Úr bókinni

Hiroshima

Sonur minn
föndrar fugla
undir vökulu auga
ókunnrar konu

Hún veit hvernig
bretta skal væng
og vinda gogg

Fuglarnir
boða farsæld
en bara ef við 
vöndum okkur

Ungur drengur
eldri kona
lúta höfði

saman
brjóta þau blað


Hafmeyja Nínu Sæm

Hún situr
í Tjörninni miðri
og bíður systra sinna

þær syndi hjá 
í gljáandi torfu

ekki að sjá
að henni sé kalt

alein
og engri lík

nema ef vera skyldi
konunni sem skóp hana


Jarðljós

Vorið heilsar
með stillum
snjór í bolla
og laut

Þegar gimbur fæðist
með glóandi hnýfla
stingast geislar
ofan í fjörðinn

Óðar stígur upp
flöktandi birta
sem líf leiki
um loftin

 

Fleira eftir sama höfund

Ljóð í Moord liederen

Lesa meira

Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf

Lesa meira

Prinsessan á Bessastöðum

Lesa meira

Ballið á Bessastöðum

Lesa meira

Kirkegården

Lesa meira

Strandir

Lesa meira

Die letzte Nacht des Jahres

Lesa meira
urta

Urta

Urta segir í fáum orðum sögu af harðri lífsbaráttu á hjara veraldar.
Lesa meira